Álfrún Auður á afmæli

Þegar ég var fruma þá kynntist ég henni Álfrúnu Auði. Við hétum engum nöfnum en ég kallaði hana alltaf fruma 2. Satt að segja þá þoldi ég hana ekki á þeim tíma þar sem hún var alltaf að pota nefinu sínu í allt og skamma mann. Þegar ég varð að barni þá vissi ég að hún yrði næst en auðvitað hugsaði ég: ,,Haha það gerist aldrei! Ég mun vera einkabarn!'' ( En annað kom í ljós. Mamma eignaðist 4 börn í viðbót og pabbi 2 ). Þegar ég frétti af því að fruma 2 væri að koma í heiminn reyndi ég allt til að stoppa fæðinguna. Ég nennti bara ekki að standa í því að fá hana í heiminn. En eftir miklar tilraunir við að stoppa fæðingu hennar gafst ég upp. Síðan 18. desember 1994 fæddist fruma 2 nema hún hét ekki fruma 2 heldur Álfrún Auður Bjarnadóttir og var alveg hreint gullfallegt barn. Ég var afbrýðisamur í fyrstu en byrjaði svona að tala við hana, spurja hvernig það væri að vera komin í heiminn en eina sem hún svaraði var bara: ,,Gúgú''. ,,Yes, hún er mállaus'' hugsaði ég. Núna gat hún ekki nöldrað í mér og skammað mig. Ég fór að stríða henni svolítið mikið eftir það því ég vissi að hún gæti ekkert svarað mér. Einn daginn brá mér voða mikið. Álfrún sagði: ,,Æjiþ, ush'' meðan ég var að stríða henni. Nú var ég byrjaður að átta mig á því að restin af ævi minni myndi verða algjört helvíti. Álfrún var byrjuð að tala og loks gat hún byrjað að rífast og skammast í mér.
Mér skjátlaðist hinsvegar. Álfrún skammaði mig og reifst í mér jú, en ég áttaði mig á því að það var aðeins útaf henni þótti vænt um mig og gerði þetta bara til að hjálpa mér. Mér þykir alveg afskaplega vænt um hana og hún er klár og ákveðin stelpa. Ég vil þakka sjálfum mér að ég gafst upp á því að stoppa fæðinguna hennar því ef ég hefði gert það hefði ég aldrei kynnst þessari yndislegu stelpu almennilega.
Álfrún Auður Bjarnadóttir til hamingju með afmælið og haltu áfram að vera klár og ákveðin. Elska þig sem mest elsku systir mín. Komdu nú heim úr skólanum svo ég geti spilað Trivial Pursuit með þér.

2in1 blogg

Meh bloggið þarna fyrir neðan var svo lélegt fyrir að vera fyrsta bloggið mitt í langan tíma svo ég ætla að blogga tvö blogg í einu bloggi.

Jól
Já það er desember. Jólinn fara að koma og allt er voða kósí.
Jólin eru þægileg og góð. Þótt jólinn eigi að vera um fæðingu Jesús þá hef ég aldrei litið á þau þannig. Ég lít á jólinn sem tíma þar sem fjölskyldan kemur saman, borða góðan mat, gefa hvor öðrum gjafir og spjalla saman. Á jólum er friður og hamingja sem er ekkert endilega tengd fæðingu Jesús. Þrátt fyrir að jólin hafi marga kosti þá hafa þau líka galla. Á jólum þarf sumt fólk að vinna og geta þess vegna ekki verið með fjölskyldu sinni. Persónulega þá finnst mér að enginn ætti að vinna á jólunum. Jólin eiga að vera afslöppun en ekki stress og þreyta sem skapast á vinnumarkaðinum. Sumir eru einir á jólunum en flest fólk sem þarf að eyða jólunum ein gera samt sér einhvað til hamingju eins og að lesa bók. Sumir halda ekki upp á jól en það er samt allt í lagi. Hjá sumum gerðist einhvað sorglegt á jólunum og eyða þeim í sorg.
Ég ætla að hætta að líta á slæmu hliðarnar og byrja að skrifa næsta blogg.

Sepultura

Ég var að tékka á nýja disknum á þungarokksbandinu Sepultura sem ber nafnið A-Lex. Lögin eru gerð eftir bókinni Clockwork Orange og eru alveg hreint yndisleg. Ég nenni samt ekki að skrifa neitt mikið um hana en hún er klárlega með betri plötum Sepultura. Á disknum er meðalannars vel rokkuð útgáfa af lögum frá Ludwig Van Beethoven ( Beethoven var jú uppáhalds tónlistarmaður aðalpersónunar Alex ) sem ber nafnið Ludwig Van.

Hér eru nokkur lög af þessum disk:





Síðasti söngur Geira H.



Í þá tíma glotti hann og sagði: "ég mun plata ykkur"